Anna Margrét Skúladóttir sálfræðingur | Mín líðan | Sálfræðiþjónusta á netinu

sálfræðingur

Anna Margrét Skúladóttir

Anna Margrét er sálfræðingur hjá Mín líðan og veitir almenna sálfræðiþjónustu. Hún hefur starfað sem sálfræðingur frá 2011, bæði á Íslandi og í Danmörku. Hún er sérfræðingur í áfallasálfræði og sinnir greiningu, ráðgjöf og sálfræðimeðferð fyrir fullorðna og hefur víðtæka reynslu af meðferð áfalla, kvíða, depurðar og fjölþætts sálræns vanda.

Sérfræði- og áhugasvið

Klínísk áherslusvið Önnu Margrétar eru áföll og afleiðingar þeirra, kvíða- og lyndisraskanir, langvarandi streita og kulnun, sorg og missir, sjálfsmynd, tilfinningastjórnun og vandi í nánum tengslum. Í meðferð leggur hún áherslu á að efla sálrænan sveigjanleika, sjálfsskilning og hæfni fólks til að takast á við erfiðar tilfinningar, reynslu og samskiptamynstur.

Anna Margrét leggur áherslu á hlýja, örugga og einstaklingsmiðaða meðferð. Meðferðarnálgun hennar byggist á samþættingu gagnreyndra og áfallamiðaðra aðferða og er löguð að þörfum og aðstæðum hvers og eins. Hún vinnur m.a. með EMDR, Emotionally Focused Individual Therapy (EFIT), Acceptance & Commitment Therapy (ACT), hugræna úrvinnslumeðferð (CPT), samkenndarmiðaða meðferð (CFT), núvitundarmiðaða hugræna meðferð (MBCT), núvitundarmiðaða streituminnkun (MBSR) og líkamsmiðaða áfallavinnu, þ.á.m. Somatic Experiencing (SE). Hún hefur einnig sótt framhaldsþjálfun í Internal Family Systems (IFS), tengslakenningum, tilfinningastjórnun og taugalíffræði áfalla.

Anna Margrét veitir jafnframt tilfinningamiðaða parameðferð (Emotionally Focused Couples Therapy, EFCT/EFT). Hún hefur lokið starfsþjálfun hjá Dansk Center for Emotionsfokuseret Terapi (DKCEFT) undir leiðsögn Jette Simon, klínísks sálfræðings og EFT-þjálfara og er skráð hjá miðstöðinni sem menntaður EFCT-parameðferðaraðili. Í parameðferð vinnur hún m.a. með tilfinningar, tengslamynstur, samskiptaerfiðleika og leiðir til að efla öryggi, nánd og gagnkvæman skilning í samböndum.

Hún hefur einnig reynslu af vinnu með langvarandi ágreining, tengslarof og skaðleg eða ofbeldisfull samskiptamynstur í nánum samböndum. Þegar vísbendingar eru um stjórnsemi eða ofbeldi leggur hún áherslu á faglegt öryggismat og að meðferðin taki mið af aðstæðum og öryggi þeirra sem í hlut eiga. Í þeirri vinnu nýtir hún meðal annars þekkingu á DARVO-mynstrinu, þar sem ábyrgð á skaðlegri hegðun er afneitað, ráðist er gegn þeim sem greinir frá henni og hlutverkum þolanda og geranda snúið við.

Menntun og starfsreynsla

Anna hefur lokið 3 ára sérhæfingu í Psykotraumalogy og er einnig sérmenntaður stjórnendaþjálfi. Hún hefur auk þess menntun og reynslu á sviði réttarsálfræði, klínískra sálfræðimats, vinnu- og skipulagssálfræði, krísustjórnunar og stjórnendaþjálfunar. Hún hefur lokið Professional Diploma-námi í afbrotasálfræði og afbrotamannagreiningu og vettvangsgreiningu hjá The Forensic Criminology Institute. Þá hefur hún hlotið þjálfun í notkun persónuleika- og áhættumats, meðal annars MINI, SCID, SARA V3, NEO-PI-3, MMPI, PCL-R og HCR-20.

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Önnu Margréti með því að senda tölvupóst á anna@minlidan.is.